Crossfit WOD:

Þessir tímar eru kjarninn í starfsemi Crossfit Kötlu. Hver tími er fjölbreyttur, skemmtilegur og hannaður til að hjálpa þér að verða sterkari, hraustari og öruggari í eigin líkama. Tímarnir samanstanda af þremur meginþáttum: 🏋️ Styrktarþjálfun,🤸 Fimleikar & færni, 🔥 Metcon Dagsins


Mánudagar, miðvikudagar, föstudagar og laugardagar eru tileinkaðir klassísku CrossFit í WOD tímum þar sem við vinnum með styrk, fimleika og WOD dagsins. Þar færðu tækifæri til að byggja upp styrk, bæta færni og takast á við skemmtilegar og krefjandi æfingar.

Þriðjudagar, fimmtudagar og sunnudagar eru WOD tímarnir tileinkaðir þrekþjálfun þar sem við leggjum áherslu á lengri WOD sem reyna á úthald, hjarta- og æðakerfið. Þar notum við tæki eins og róðravélar, AirBike og SkiErg ásamt einfaldari hreyfingum með líkamsþyngd, ketilbjöllum og handlóðum sem henta öllum, óháð reynslu.

Allar æfingar eru skalanlegar og þjálfararnir hjálpa þér að finna útgáfu sem hentar þínum styrk, reynslu og markmiðum.

Ertu nýr í CrossFit? Við hjálpum þér að komast hratt og örugglega af stað með reglulegum grunnnámskeiðum þar sem farið er yfir helstu hreyfingar, tækni og undirstöðuatriði CrossFit. Hér sérðu næsta Grunnámskeið.

Hvort sem markmiðið er að verða sterkari, bæta þolið eða einfaldlega hreyfa sig reglulega, þá finnur þú tíma við þitt hæfi hjá okkur. Skoðaðu verðskrána Hér

Sjáumst í tíma💪 

 

 

Foreldra CrossFit

ForeldraFit er fyrir foreldra með ungbörn sem vilja hreyfa sig í góðum félagsskap án þess að þurfa að hafa áhyggjur af barnapössun. Hvort sem þú ert mamma eða pabbi í fæðingarorlofi / foreldraorlofi / leikskólafríi, þá ertu hjartanlega velkomin/n.

Æfingarnar eru fjölbreyttar og einstaklingsmiðaðar, með áherslu á styrk, þol og hagnýtar hreyfingar sem nýtast í daglegu lífi. Við aðlögum æfingarnar að þinni reynslu, getu og markmiðum – hvort sem þú ert að hefja hreyfingu aftur eftir meðgöngu og fæðingu eða hefur æft reglulega áður.

Börnin eru að sjálfsögðu velkomin með í salinn og við leggjum áherslu á afslappað og stuðningsríkt umhverfi þar sem foreldrar geta hreyft sig á sínum forsendum.

ForeldraFit er kennt:
📍 Alla virka daga kl. 10:10–11:10 í Lambhaga

Salurinn er opinn frá kl. 10:00 svo þú hafir nægan tíma til að koma þér og barninu fyrir áður en æfingin hefst. Einnig er gott aðgengi fyrir vagna og kerrur.

Komdu eins og þú ert – við sjáum um restina. 💛

 

 

Ólympískar Lyftingar (OLY)

OLY tímarnir eru fyrir þá sem vilja bæta tækni, styrk og færni í ólympískum lyftingum. Hér færðu tíma og leiðsögn til að vinna markvisst í hreyfingum eins og Snatch og Clean & Jerk, ásamt þeim styrktar- og tækniæfingum sem styðja við framfarir.

Tímarnir henta bæði byrjendum og lengra komnum. Hvort sem þú ert að læra grunninn eða vinna að því að bæta persónuleg met, þá hjálpum við þér að þróast á þínum hraða.

Áherslan er á góða tækni, skilning á hreyfingunum og reglulegar framfarir yfir tíma.

OLY tímar eru kenndir af Bjarka:
📍 Þriðjudaga kl. 17:15
📍 Sunnudaga kl. 11:00

Ef markmiðið er að verða betri í ólympískum lyftingum er lykillinn einfaldur: mæta reglulega, æfa tæknina og treysta ferlinu. 🏋️‍♀️💪

 

 

Bekkur og Bís – föstudagar í Holtagörðum

Ljúktu vikunni af krafti með Bekk og Bís tímunum okkar í Holtagörðum á föstudögum! Þessir tímar sameina markvissa styrktarþjálfun með skemmtun :)

Hér setjum við áherslu á bekkpressu, bís (biceps) og gott pump andlega og líkamlega fyrir helgina. 

Hvort sem markmiðið þitt er að auka styrk, bæta tækni eða einfaldlega fá góða styrktaræfingu í góðum hópi, þá henta þessir tímar fyrir alla sem vilja taka framförum með bros á vör. Við leggjum áherslu á rétta framkvæmd, stigvaxandi álag og skemmtilega stemningu þar sem allir geta mætt á sínum forsendum.

Komdu og byggðu styrk með okkur í Holtagörðum – Bekk og Bís á föstudögum!

 

 

crossmenuchevron-down