Foreldra-Fit - Haustið 2026

25. ágúst, 2026
Skrifað af: Eik Gylfa

Þráir þú rútínu í orlofinu eftir sumarið en vilt hafa börnin með í för?

ForeldraFit er hugsað fyrir foreldra í orlofi sem vilja æfa af krafti án þess að þurfa að finna pössun — börnin koma með, og æfingin er löguð að því. Nú liggur fyrir fyrirkomulag vetursins og breytingar sem taka gildi 1. september.

September er oft kallaður litli janúar. Sumarfríið er búið, dagarnir að styttast og margir foreldrar nýta tækifærið þegar aðrir eru snúnir aftur til vinnu og skóla til að setja sig aftur í forgang — á sínum eigin forsendum, með börnin sér við hlið.

Hvað er í boði?

Kenndir tímar, þrisvar í viku:
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:10–11:10.

Auk þess bætum við við Open Gym fyrir foreldra með börn:
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10:00–12:00. Æfing er skrifuð upp á töflu en enginn þjálfari á staðnum — þið mætið og takið skrifuðu æfinguna, eða aðra æfingu að eigin vali, á ykkar eigin hraða og forsendum. Við biðjum bara að sýnd sé tillitsemi og öryggis sé gætt fyrir öll börn sem eru í salnum.

Fyrir hverja?

ForeldraFit hentar öllum foreldrum, hvort sem þið hafið æft lengi eða eruð að stíga fyrstu skrefin. Fyrirkomulagið gefur ykkur sveigjanleika — fasta, kennda tíma til að byggja upp styrk og rútínu, og opna tíma til að mæta þegar dagurinn leyfir.

Við hlökkum til að sjá ykkur og börnin í vetur.

crossmenuchevron-down