Tilkynning um yfirstandandi breytingar!

26. október, 2026
Skrifað af: Eik Gylfa

Breytingar hjá CrossFit Katla – hvað er að gerast í Holtagörðum og Lambhaga?

CrossFit Katla er hluti af Kötlu Fitness og hefur boðið upp á CrossFit-tíma á tveimur stöðum: í Holtagörðum og í Lambhaga. Nú eru töluverðar breytingar fram undan á báðum stöðum. Sumar taka gildi strax um mánaðamótin október/nóvember, aðrar skýrast á næstu vikum. Hér förum við yfir hvað er að breytast og hvað það þýðir fyrir þig – hvort sem þú æfir hjá okkur í dag eða ert að velta fyrir þér að byrja.

Holtagarðar: minna húsnæði og endurbætur

Katla Fitness hefur gert nýjan leigusamning um húsnæðið í Holtagörðum og stöðin verður töluvert minni en hún er í dag. CrossFit-salirnir eru hluti af þeim fermetrum sem skilað verður og því loka þeir 31. október.

Framkvæmdir hefjast 1. nóvember, fyrst með því að loka þeim hluta húsnæðisins sem verður skilað. Í framhaldinu verður restin af stöðinni tekin í gegn – nýir salir, ný tæki og endurnýjuð sturtuaðstaða. Aðrar dagsetningar varðandi breytingarnar verða tilkynntar síðar.

Hvað tekur við í Holtagörðum?

Eftir breytingarnar verður nýr functional fitness salur í Holtagörðum. Þetta er salur sem er hannaður fyrir fjölbreyttar, hagnýtar æfingar – þá tegund þjálfunar sem CrossFit byggir á. Stefnt er að því að bjóða þar upp á WOD-tíma (WOD stendur fyrir „Workout of the Day“, eða æfingu dagsins) með Pálma, Sigga og fleiri þjálfurum. Nánari útfærsla liggur þó ekki enn fyrir og við munum upplýsa alla um framvinduna og fyrirkomulagið eftir því sem það skýrist.

Aðgangur þinn helst

Allir CrossFit-meðlimir halda áfram aðgangi að öllum stöðvum Kötlu Fitness. Þó CrossFit-salirnir í Holtagörðum loki hefur þú því áfram aðgang að öllum æfingastöðum og Crossfit tímum í Lambhaga.

Lambhagi: Hyrox-leyfi og uppfærður salur

CrossFit Katla í Lambhaga hefur fengið Hyrox-leyfi. Hyrox er alþjóðleg keppnisgrein sem blandar saman hlaupi og föstum æfingastöðvum – til dæmis sleðaýtingu og sleðadrætti, róðri og wall balls – og nýtur sívaxandi vinsælda, bæði sem keppni og sem æfingaform.

Fyrir þá sem æfa í Lambhaga er breytingin í sjálfu sér ekki stór. Við höfum í töluverðan tíma keyrt Hyrox-innblásnar æfingar á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum. Nú uppfærum við hins vegar salinn í samræmi við leyfið og tökum þetta alla leið.

Það kemur nýtt Hyrox-teppi og nýir sleðar fyrir push og pull. Svarta búrið – stóri lyftingarekkinn sem hefur verið í Holtagörðum – verður sett upp í Lambhaga. Við höfum tekið Assault-hjólin úr umferð og skipt alfarið yfir í Rogue-hjól. Að lokum hefur Hreysti yfirfarið öll þolþjálfunartækin, lagað þau og smurt og komið þeim í toppstand.

Tvær útfærslur af æfingu dagsins

Til viðbótar byrjum við að bjóða upp á tvær útfærslur af WOD-inu á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Við elskum oldshool crossfit og höfum ekki hugsað okkur að hætta því í bráð. En höfum bætt við Functional Body Building leið fyrir þá sem vilja örlítið meiri styrk og aðeins minni hamagang. Einfaldlega eitthvað fyrir alla. Þessar æfingar eru keyrðar samhliða í öllum WOD tímum þessa daga og þú mátt velja hverju sinni hvað hentar þér best þann daginn.

Ef breytingarnar henta þér ekki

Við gerum okkur grein fyrir því að breytingarnar í Holtagörðum henta ekki öllum. Ef þær hafa áhrif á þig, endilega sendu okkur skilaboð á einum af okkar miðlum, Facebook, Tölvupósti á CrossFit Katla og við finnum lausn með þér.

Áfram gakk – höldum áfram að mæta vel og svitna saman.

Ykkar þjálfarar

crossmenuchevron-down