Þráir þú rútínu í orlofinu eftir sumarið en vilt hafa börnin með í för?

ForeldraFit er hugsað fyrir foreldra í orlofi sem vilja æfa af krafti án þess að þurfa að finna pössun — börnin koma með, og æfingin er löguð að því. Nú liggur fyrir fyrirkomulag vetursins og breytingar sem taka gildi 1. september.

September er oft kallaður litli janúar. Sumarfríið er búið, dagarnir að styttast og margir foreldrar nýta tækifærið þegar aðrir eru snúnir aftur til vinnu og skóla til að setja sig aftur í forgang — á sínum eigin forsendum, með börnin sér við hlið.

Hvað er í boði?

Kenndir tímar, þrisvar í viku:
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:10–11:10.

Auk þess bætum við við Open Gym fyrir foreldra með börn:
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10:00–12:00. Æfing er skrifuð upp á töflu en enginn þjálfari á staðnum — þið mætið og takið skrifuðu æfinguna, eða aðra æfingu að eigin vali, á ykkar eigin hraða og forsendum. Við biðjum bara að sýnd sé tillitsemi og öryggis sé gætt fyrir öll börn sem eru í salnum.

Fyrir hverja?

ForeldraFit hentar öllum foreldrum, hvort sem þið hafið æft lengi eða eruð að stíga fyrstu skrefin. Fyrirkomulagið gefur ykkur sveigjanleika — fasta, kennda tíma til að byggja upp styrk og rútínu, og opna tíma til að mæta þegar dagurinn leyfir.

Við hlökkum til að sjá ykkur og börnin í vetur.

Ertu með ungling á aldrinum 11–15 ára (fædd 2011-2014) sem langar að byrja að æfa eða taka næsta skref í líkamsrækt?

Nú er Unglinga-CrossFit Kötlu komið í sölu fyrir haustið 2026. Námskeiðið er ætlað ungu fólki í 7.–10. bekk sem er að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt eða vill byggja upp góðan grunn í styrk, hreyfingu og tækni.

Markmiðið er að skapa skemmtilegt og öruggt umhverfi þar sem unglingarnir geta orðið sterkari, lært góðar hreyfivenjur og byggt upp sjálfstraust í æfingum.

Hvað gerum við?

Á námskeiðinu fá unglingarnir fjölbreyttar og krefjandi æfingar þar sem við vinnum meðal annars með:

Æfingarnar eru aðlagaðar að getu hvers og eins, þannig að bæði byrjendur og þau sem hafa meiri reynslu geta fengið krefjandi og viðeigandi æfingu.

Hvenær?

📅 Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar
🕒 15:15–16:15
📍 CrossFit Katla – Lambhagi

Hvað svo?

Við viljum að unglingarnir byggi upp góðan grunn áður en þeir fara yfir í almenna CrossFit-tíma. Þegar góðri tækni hefur verið náð og þjálfari metur viðkomandi tilbúinn er hægt að færa sig yfir í almenna tíma.

Unglingar í 10. bekk geta einnig valið að taka venjulegt grunnnámskeið og fara þaðan í almenna tíma. Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt er hins vegar yfirleitt betri kostur að byrja í Unglinga-CrossFit og byggja upp grunninn þar.

Frístundastyrkur

Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir námskeiðið.

Við viljum að unglingar fái tækifæri til að læra að hreyfa sig af öryggi, upplifa árangur og finna gleðina sem fylgir því að verða sterkari.

Góður grunnur í dag getur skipt miklu máli til framtíðar. 💪🖤

Langar þig að byrja að æfa í haust en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja?

Nú er Grunnámskeið Crossfit Kötlu komið í sölu og er þetta frábært tækifæri til að hefja haustið af krafti, - á öruggan, skemmtilegan og markvissan hátt.

Við köllum september oft litla janúar. Sumarfríið er búið, rútínan tekur við á ný og margir nýta tækifærið til að setja heilsuna aftur í forgang. Grunnnámskeiðið er fullkomin leið að koma sér aftur af stað og byggja upp góðar æfingarvenjur fyrir veturinn.

Hvað lærir þú?

Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöðuatriði CrossFit, þar á meðal.

Þú þarft ekki að hafa fyrri reynslu af Crossfit eða Líkamsrækt. Námskeiðið hentar öllum sem vilja byrja á réttan hátt með góðri leiðsögn frá reyndum þjálfurum.

Hvenær?

Námskeiðið er frá 24. Ágúst til 3. September 2026. Kennt er Mánudaga, Þriðjudaga og Fimmtudaga, frá klukkan 19:15-20:15 í Crossfit Kötlu Lambhaga.

Verð: 18.950 kr

Kort út september fylgir með í kaupunum, þannig að þú getur strax byrjað að næta í almenna tíma þegar grunnnámskeiðinu lýkur og fest nýju venjurnar í sessi.

Haustið er frábær tími til að byrja. Við hlökkum til að koma þér hratt, örugglega og með sjálfstrausti af stað í CrossFit.

SKRÁNING Á GRUNNÁMSKEIÐ (undir Crossfit Katla, Tímabundin Kort)

crossmenuchevron-down