fbpx

Um CrossFit

29. september, 2020
Skrifað af: Ívar Smárason

CrossFit er skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi líkamsrækt sem skilar einstökum árangri á breiðum grunni betra forms, vellíðunar og bættrar heilsu.
Staður til að kynnast fullt af skemmtilegu fólki sem hefur það sameiginlega markmið að koma sér í betra alhliða form.

Alhliða þjálfun

CrossFit er alhliða styrktar- og úthaldsþjálfun sem byggist upp á stöðugt breytilegum æfingum. Æfingakerfið miðar að því að undirbúa iðkendur þess til að takast á við líkamlegar áskoranir af hvaða tagi sem er án þess að sérhæfa sig í neinni grein.

Skalað eftir getu

Allar æfingar í CrossFit má skala niður í erfiðleika sem gerir öllum sem vilja stunda þær kleift að stunda þær, óháð reynslu. Sömu æfingar eru notaðar af eldri einstaklingum með hjartasjúkdóma og bardagaíþróttamönnum í keppnisformi. Þyngdir og álag eru skalaðar niður en uppbyggingu æfinga er ekki breytt. CrossFit æfingar eru árangursmiðaðar og því mælanlegar. Öllum er kleift að stunda þær og allir njóta góðs af þeim.

Lærðu grunninn vel

Þeir sem ætla sér að byrja að æfa CrossFit er ráðlagt að sækja Grunnnámskeið í CrossFit. Þar eru kennd undirstöðuatriðin í beitingu líkamans í hinum ýmsu æfingum. Fimleikaæfingar, ólympískar lyftingar, ketilbjölluæfingar og aðrar tæknilegar æfingar þarf að æfa undir leiðsögn til að koma í veg fyrir meiðsli og flýta árangri.

Mataræði

Þar sem CrossFit er heilsteypt æfingakerfi spilar mataræði stóran hlut í árangurskúrvunni.  Í mjög stuttu máli þá byggir mataræðið á grænmeti,  kjöti, smá ávöxtum, hnetum og fræjum, lítilli sterkju og engum sykri. Þær vörur sem hafa langan geymslutíma skal reyna að forðast eftir bestu getu.

Ítarefni, daglegar æfingar, ógrynni upplýsinga og annað má finna á heimasíðu CrossFit: crossfit.com

crossmenuchevron-down