Unglinga-CrossFit – Haustið 2026 💪

10. ágúst, 2026
Skrifað af: Eik Gylfa

Ertu með ungling á aldrinum 11–15 ára (fædd 2011-2014) sem langar að byrja að æfa eða taka næsta skref í líkamsrækt?

Nú er Unglinga-CrossFit Kötlu komið í sölu fyrir haustið 2026. Námskeiðið er ætlað ungu fólki í 7.–10. bekk sem er að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt eða vill byggja upp góðan grunn í styrk, hreyfingu og tækni.

Markmiðið er að skapa skemmtilegt og öruggt umhverfi þar sem unglingarnir geta orðið sterkari, lært góðar hreyfivenjur og byggt upp sjálfstraust í æfingum.

Hvað gerum við?

Á námskeiðinu fá unglingarnir fjölbreyttar og krefjandi æfingar þar sem við vinnum meðal annars með:

  • 🏋️ Lóð og ketilbjöllur
  • 🏐 MedBall
  • 🤸 Eigin líkamsþyngd
  • 🏋️‍♀️ Stangaræfingar
  • ⚡ Ólympískar lyftingar og tæknivinnu

Æfingarnar eru aðlagaðar að getu hvers og eins, þannig að bæði byrjendur og þau sem hafa meiri reynslu geta fengið krefjandi og viðeigandi æfingu.

Hvenær?

📅 Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar
🕒 15:15–16:15
📍 CrossFit Katla – Lambhagi

Hvað svo?

Við viljum að unglingarnir byggi upp góðan grunn áður en þeir fara yfir í almenna CrossFit-tíma. Þegar góðri tækni hefur verið náð og þjálfari metur viðkomandi tilbúinn er hægt að færa sig yfir í almenna tíma.

Unglingar í 10. bekk geta einnig valið að taka venjulegt grunnnámskeið og fara þaðan í almenna tíma. Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt er hins vegar yfirleitt betri kostur að byrja í Unglinga-CrossFit og byggja upp grunninn þar.

Frístundastyrkur

Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir námskeiðið.

Við viljum að unglingar fái tækifæri til að læra að hreyfa sig af öryggi, upplifa árangur og finna gleðina sem fylgir því að verða sterkari.

Góður grunnur í dag getur skipt miklu máli til framtíðar. 💪🖤

crossmenuchevron-down