HYROX í Lambhaga – nú með réttu nafni

31. október, 2026
Skrifað af: Eik Gylfa

Ef þú hefur mætt á þriðjudegi, fimmtudegi eða sunnudegi í Lambhaga undanfarið ár hefur þú sennilega þegar prófað HYROX – þú vissir það bara kannski ekki. Nú setjum við rétt nafn á það sem við höfum verið að gera, og fáum til þess almennilegar græjur.

Hvað er HYROX?

HYROX er líkamsræktarkeppni sem sameinar hlaup og hagnýtar styrktar- og þolæfingar. Formið er einfalt og alltaf það sama: átta sinnum 1 km hlaup, og á milli hverra hlaupa er ein æfingastöð. Stöðvarnar eru alltaf í sömu röð:

  1. SkiErg – 1000 m
  2. Sleðaýting (sled push)
  3. Sleðadráttur (sled pull)
  4. Burpee broad jumps
  5. Róður – 1000 m
  6. Farmers carry
  7. Sandpokaframstig (sandbag lunges)
  8. Wall balls

Það sem gerir HYROX sérstakt er að allt er staðlað – þyngdir, vegalengdir, búnaður og röð æfinga. Tíminn þinn í Hamborg er því sambærilegur við tíma einhvers í Dubai, London eða New York. Þú keppir í raun við sjálfa(n) þig og klukkuna, en ert samt hluti af stærri heild.

Og þetta er ekki bara fyrir afreksfólk. Það eru engin tímamörk og engin undankeppni til að skrá sig. Hægt er að keppa einn, í pari eða í boðhlaupsliði, og það er pláss fyrir alla – frá þeim sem stefna á verðlaunapall yfir í þá sem vilja einfaldlega klára og vera stolt af sér. Það má kynna sér reglur, næstu mót og fleira á heimasíðu HYROX https://hyrox.com/

Stutt saga

HYROX var stofnað í Þýskalandi árið 2017 af Christian Toetzke, sem hafði áralanga reynslu af því að halda stóra hjólreiða-, maraþon- og þríþrautarviðburði, og Moritz Fürste, Ólympíumeistara í hokkí. Hugmyndin var að búa til keppni fyrir venjulegt líkamsræktarfólk – eitthvað sem hefði sömu stemningu og maraþon, en byggði á því sem fólk gerir í ræktinni.

Fyrsta keppnin var haldin í Hamborg og þátttakendur voru um 650. Síðan þá hefur HYROX vaxið gríðarlega hratt og er í dag ein af hraðast vaxandi greinum líkamsræktar í heiminum, með keppnir í fjölda landa og heimsmeistaramót á hverju ári. Samhliða keppnunum geta æfingastöðvar orðið opinberir HYROX-samstarfsaðilar – og það er einmitt það sem CrossFit Katla í Lambhaga er orðið.

Það sem við erum búin að vera gera allan tímann

Í töluverðan tíma höfum við keyrt HYROX-innblásnar æfingar á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum. Hlaup, sleðar, róður, wall balls, lunges – blandan sem einkennir HYROX. Þessir tímar hafa gengið mjög vel og það hefur verið frábært að sjá hvað þið, kæru iðkendur, hafið tekið þeim vel. Mætingin, orkan og framfarirnar tala sínu máli.

Þannig að fyrir ykkur breytist í raun ekki mikið. Tímarnir verða á sömu dögum, með sama anda og sömu þjálfurum. Við erum einfaldlega að kalla hlutina sínu rétta nafni.

Það sem breytist: Nýr búnaður!

Það eina sem breytist í raun er búnaðurinn. Með HYROX-leyfinu höfum við fengið opinberan HYROX-búnað – sama búnað og notaður er á mótum:

  • Nýja sandpoka
  • Nýja sleða fyrir push og pull
  • Nýtt teppi sem er eins og keppnisteppið á HYROX-mótum
  • Ný Wall ball target sem kemur innan skamms

Þetta skiptir máli. Sleði á keppnisteppi hegðar sér öðruvísi en á venjulegu gólfi, og það er mikill munur á að æfa á réttu undirlagi og með réttum búnaði ef þú stefnir á keppni. En þetta eru líka einfaldlega góðar græjur sem gera æfingarnar betri – fyrir alla.

Fyrir hvern er þetta?

Fyrir þig – hvort sem þú ert með HYROX-keppni í sigtinu eða vilt bara taka vel á því með okkur. Sumir mæta til að undirbúa sig fyrir mót og vilja vita nákvæmlega hvernig hver stöð á að líða. Aðrir mæta af því að þetta er krefjandi, fjölbreytt og skemmtileg þjálfun sem byggir upp bæði þol og styrk. Bæði er jafn gilt.

Ef þú hefur ekki prófað ennþá, þá er þetta góður tími til að byrja. Sjáumst á þriðjudag, fimmtudag eða sunnudag í Lambhaga.

Ykkar þjálfarar

crossmenuchevron-down