CrossFit grunnámskeið – byrjaðu fyrir jól

2. nóvember, 2026
Skrifað af: Eik Gylfa

Nýtt grunnámskeið CrossFit Kötlu er komið í sölu. Það er frábær leið til að koma sér af stað á öruggan, skemmtilegan og markvissan hátt.

Flestir bíða eftir janúar til að setja heilsuna í forgang. Þú þarft þess ekki. Ef þú byrjar núna ertu kominn með rútínu, grunntækni og góðar æfingavenjur áður en desember gengur í garð, og stendur betur að vígi þegar nýja árið byrjar. Það hjálpar líka að hafa fastan punkt í vikunni þegar dagarnir styttast.

Hvað lærir þú?
Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöðuatriði CrossFit:

  • Grunnstyrktaræfingar
  • Tækni í helstu stangaræfingum
  • Fimleikahreyfingar og skalanir
  • Hvernig þú aðlagar æfingar að þinni getu

Þú þarft ekki fyrri reynslu af CrossFit eða líkamsrækt. Námskeiðið hentar öllum sem vilja byrja á réttan hátt með góðri leiðsögn frá reyndum þjálfurum.

Hvenær?
16.–26. nóvember
Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:15–20:15 í CrossFit Kötlu Lambhaga

Verð: 18.950 kr. (samningur til 46 daga)

Desember fylgir með í kaupunum. Þegar grunnámskeiðinu lýkur geturðu því strax byrjað að mæta í almenna tíma og fest nýju venjurnar í sessi.

Við hlökkum til að koma þér af stað í CrossFit, örugglega og með sjálfstrausti.

SKRÁNING Á GRUNNÁMSKEIÐ (undir CrossFit Katla, Tímabundin kort)

crossmenuchevron-down